Fréttir

Starfsmenntasjóður FÍA

Kæru félagsmenn!

15.8.2008

Síðastliðinn vetur var skipuð stjórn til þess að stýra starfsmenntasjóði félagsins. Stjórnin samanstendur af þremur aðilum, Stellu Ólafsdóttur, Grétari Strange og Guðmundi Tómasi Sigurðssyni. Á síðasta ári var unnið að því að skilgreina starfssemi stjórnarinnar og einnig tilgang og markmið þeirra starfa sem að sjóðurinn sinnir. Því er nú að mestu lokið með nýrri reglugerð fyrir sjóðinn sem samþykkt var á aðalfundinum í febrúar s.l. Þar kemur fram að markmið sjóðsins er í að styrkja og hvetja flugmenn til að afla sér sí-, endur- og starfsmenntunar í þeim tilgangi að styrkja hæfni sína í starfi. Einnig að standa straum af kostnaði við námskeiðahald og námsgagnagerð sem stjórn sjóðsins ákveður á hverjum tíma að bjóða sjóðsfélögum. Þetta er töluverð breyting frá fyrri reglugerð en okkar hugmynd er að sjóðurinn nýtist mun fleirum ef farið er í að úthluta styrkjum þar sem að hver og einn getur þá fundið eitthvað við sitt hæfi.

Við í stjórninni hvetjum félagsmenn til að senda tölvupóst til okkar eða hafa samband beint við stjórnarmenn hafi þeir hugmyndir um einhver námskeið og/eða fyrirlestra sem hægt væri að bjóða félagsmönnum eða eru með einhverjar fyrirspurnir. Netfangið okkar er starfsmenntasjodur@fia.is


Fyrstu styrkirnir úr sjóðnum verða veittir í október og er umsóknarfresturinn til 1.okt. Umsóknina og allar tilheyrandi upplýsingar er að finna á vefnum.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innranetinnranet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.