Núna síðastliðnar vikur hefur verið í gangi reynslukosning á vef FÍA sem lauk nú á miðnætti 26. desember. Kosningin gekk vel og stóðst kerfið allar okkar væntingar. Hægt er að sjá niðurstöðu kosningarinnar hér.
Lesa meiraÞví miður kom upp bilun í búnaði hjá hýsingaraðila vefsins okkar þannig að notendur geta ekki skráð sig inn og nýtt læst svæði eins og spjallborð og fleira. Ekki tókst að koma þessu í lag fyrir jólin ef fer vonandi í lag strax á milli hátíða.
Jólakveðja: Kerfisstjóri
Skrifstofa FÍA verður lokuð frá og með mánud. 22. desember og fram á nýja árið.
Skrifstofan opnar aftur mánudaginn 5. janúar.
Stjórn og starfsfólk FÍA óskar félagsmönnum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Lesa meiraÚt er komið veglegt jólafréttabréf FÍA. 16 síður fullar af efni.
Hægt er að sækja fréttabréfið á PDF formi hér.
Lesa meiraNú eru komnar upplýsingar um þá þjónustu sem stendur félagsmönnum FÍA til boða inn á vefinn.
Hægt er að skoða það hér. Meðal annars er um að ræða blóðsýnatöku, blettaskoðun, krabbameinsskoðun og ristilspeglun og eru allir félagsmenn hvattir til að nýta sér þessar fyrirbyggjandi aðgerðir.
Lesa meiraFélagsfundur FÍA verður haldinn þriðjudaginn 2. des. n.k., kl. 13:00 í Hvammi á Grand Hótel Reykjavík.
Dagskrá
1. Tillögur að lagabreytingum FÍA.
2. Staða EFÍA.
3. Staða flugfélaganna - samningar og undanþágur.
4. Viðbragðsáætlun FÍA - kynning ÖFÍA.
5. Önnur mál.
Stjórn FÍA
Lesa meiraNú hefur FÍA gengið frá samning vegna rafrænna kosninga sem gerir félagsmönnum kleift að taka þá í kosningum hvaðan sem er, svo fremi sem viðkomandi geti komist í netsamband.
Héðan í frá verða allar kosningar rafrænar og kjörseðlar sendir út rafrænt þannig að mjög áríðandi er að allir gangi úr skugga um að netföng séu rétt skráð hjá FÍA. Ef þú ert félagsmaður og hefur ekki fengið tölvupóst frá FÍA nýlega þá má gera ráð fyrir að athuga þurfi hvort netfang þitt sé rétt skráð. Þeir sem vilja ganga úr skugga um sitt netfang vinsamlegast hafið samband við skrifstofu.
Lesa meiraDótturfélag Icelandair Group, Latcharter eða nú SmartLinx, ætlar nú að ráða að minnsta kosti 7 flugmenn og flugstjóra sem eru í vetraruppsögn hjá Icelandair.
Fyrir nokkru síðan fréttist af lausum stöðum hjá félaginu sem leiddi til þessarar niðurstöðu að SmartLinx ætlar að ráða þessa Íslendinga. FÍA hefur lengi leitað leiða til að fá Icelandair Group til að samþykkja að flugmenn Icelandair ehf. nytu forgangs til annarra starfa dótturfélaga innan samstæðunnar, en án mikilla undirtekta. FÍA hafði enga milligöngu um þessar ráðningar en lýsir þó yfir ánægju að félagið skuli sýna þessa viðleitni.
Að auki má geta þess að 5 flugmenn eru komnir með vinnu flyLAL sem flýgur á Boeing 757 út frá Vilnius í Litháen og 3 flugmenn eru hjá AirNiugini að fljúga Boeing 757 vél Icelandair út frá Port Moresby í Papúa Nýju Gíneu, en sú vél hefur verið þurrleigð til AirNiugini, sem þýðir að vélin er leigð án áhafna og eru þessir flugmenn því nú starfsmenn AirNiugini.
Þá er einnig nokkur hópur stakra flugmanna sem kominn eru í vinnu hjá öðrum félögum í Evrópu.
Í dag, mánudaginn 20. október, er fyrsti samningafundur FÍA við nýstofnað félag, Norlandair, sem mun taka yfir rekstur TwinOtter flugvéla Flugfélags Íslands.
Mikill kraftur er í mönnum hjá Norlandair og óskar FÍA þeim til hamingju með yfirtökuna á vélunum og óskar jafnframt góðs gengis í rekstri þeirra.
Lesa meiraÍ tilefni atburða undanfarinna daga telur FÍA rétt að það komi skýrt fram að til að styrkja íslenskt atvinnulíf sé nauðsynlegt að velja íslenskt, þar á meðal að fljúga með íslenskum flugfélögum frekar en erlendum samkeppnisaðilum.
Það skal því áréttast að ef keyptur er farmiði, eins og með Iceland Express, er í raun verið að kaupa miða með Breska flugfélaginu Astreus, þar sem flogið er á þeirra flugvélum með breskum flugmönnum og á bresku flugnúmeri. Það flug fellur í einu og öllu undir reglur "vina" okkar breta sem hafa staðið svo vel við bakið á okkur í hremmingum undanfarinna daga eins og raun ber vitni.
VELJUM ÍSLENSKT!
Lesa meira
Rabbfundur verður haldinn í húsakynnum FÍA þriðjudaginn 14. okt. kl. 20:00.
Fundurinn er ætlaður flugliðum AAI.
Ýmis málefni verða rædd og eru flugliðar hvattir til að mæta.
Stjórn FÍA
Lesa meiraNú er komið út nýtt fréttabréf FÍA og verður það sent á tölvupósti sem fyrr til allra félagsmanna. Einnig er hægt að sækja það hér á vefnum undir Fréttir-Fréttabréf. Þetta er fyrsta fréttabréfið sem ekki er sent í pósti til allra, einungis þeirra sem hafa sérstaklega óskað eftir því. Þeir sem nú vilja láta bæta sér á listann er bent á að senda línu á webmaster@fia.is sem gengur frá skráningu um hæl.
Skipaður hefur verið stýrihópur sem móta á flugöryggisáætlun fyrir árin 2009 til 2012. Slík áætlun er hliðstæð öryggisáætlunum á sviði siglinga og umferðar á vegum og er stefnt að því að flugöryggisáætlunin verði tilbúin um næstu áramót.
Fyrstu skref stýrihópsins er að vinna að markmiðasetningu áætlunarinnar, mótun og forgangsröðun verkefna. Sett hefur verið upp sérstakt vefsvæði þar sem almenningi gefst kostur á að koma á framfæri ábendingum sínum og athugasemdum um verkefni í nýja flugöryggisáætlun. Einnig er að finna upplýsingar um heimsáætlun Alþjóðaflugmálastofnunarinnar í flugöryggismálum og flugleiðsögu ásamt annars efnis er varðar slíka áætlanagerð á vefsvæðinu.
Lesa meira11. sept. verður haldið "sveitaball" á vegum FÍA og FFÍ. Verkefnið hefur hlotið vinnuheitið "Drekinn 2008". Þetta verður nánar auglýst síðar, nú er bara verið að hvetja fólk til að panta sér frí. Látum fylgja með auglýsingu sem var birt á vef FFÍ.
Kveðja skemmtinefndin.
Lesa meiraSíðastliðinn vetur var skipuð stjórn til þess að stýra starfsmenntasjóði félagsins. Stjórnin samanstendur af þremur aðilum, Stellu Ólafsdóttur, Grétari Strange og Guðmundi Tómasi Sigurðssyni. Á síðasta ári var unnið að því að skilgreina starfssemi stjórnarinnar og einnig tilgang og markmið þeirra starfa sem að sjóðurinn sinnir. Því er nú að mestu lokið með nýrri reglugerð fyrir sjóðinn sem samþykkt var á aðalfundinum í febrúar s.l. Þar kemur fram að markmið sjóðsins er í að styrkja og hvetja flugmenn til að afla sér sí-, endur- og starfsmenntunar í þeim tilgangi að styrkja hæfni sína í starfi.
Lesa meira
Út er komin myndin "Íslenskir Atvinnuflugmenn" á DVD. Myndin er eftir Ingvar Mar Jónsson og Snorra B. Jónsson. Icelandair Group hefur nú stofnað ferðaskrifstofuna VITA sem býður meðal annars upp á skíðaferðir, borgarferðir og sólarferðir. Meðal fyrstu áfangastaða ber að nefna Balí, Ítalíu og Kanaríeyjar og eru brottfarir vikulega að jafnaði á hvern stað fyrst um sinn.
Fyrir okkur flugmenn er þetta kærkomin viðbót við þau flug sem við fljúgum í dag og óskar FÍA Icelandair Group, Iceland Travel og VITA innilega til hamingju og vonum að þetta eigi eftir að eflast og stækka með tíð og tíma.
Umboðsmaður Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu, að reglugerð þar sem kveðið er á um hve mikið magn af varningi ferðamenn og farmenn mega taka með sér inn í landið án þess að greiða tolla, hafi ekki lagastoð.
Þrír farmenn kvörtuðu til umboðsmanns yfir því, að samkvæmt reglugerð mættu þeir ekki taka eins mikinn tollfrjálsan varning, svo sem áfengi og tóbak, inn í landið og farþegar með flugvélum eða skipum.
Lesa meiraNú nýverið hafa birst nokkrir pistlar eftir formann FÍA, Jóhannes Bjarna Guðmundsson, varðandi þá þróun sem ríkir varðandi aukningu á því að félög, sem kynna sig sem íslensk félög, eru að neita íslendingum um störf og eru þess í stað með erlenda verktaka sem oft og tíðum eru skráðir í löndum sem oft kallast skattaparadís. Pistlana er hægt að lesa hér á vefnum.
Það vekur athygli að ekki nokkur aðili hefur reynt að andmæla þessum greinarskrifum og hljótum við að túlka það á þann hátt að ekki sé nokkur kostur á því þar sem þetta er satt og rétt.
Við hvetjum íslenska neytendur að skoða málið vandlega áður en haldið er af stað í ferðalag, hvað liggur að baki því sem í boði er.
Nú í dag, sunnudaginn 29. júní, var auglýst eftir umsóknum í starf flugrekstrarstjóra Landhelgisgæslunnar á atvinnusíðum Fréttablaðsins. Jafnframt er tekið fram að umsækjandi verði að hafa flugmannsréttindi því í starfinu felist að fljúga vélum félagsins sem flugmaður eða flugstjóri eftir þörfum.
Þetta mun vera breyting frá síðustu auglýsing þar sem einungis var auglýst eftir stöðu flugrekstrarstjóra og er nýráðinn flugrekstrarstjóri fór að sækjast eftir sæti flugmanns þá fór allt í hnút þar sem starfandi flugmenn voru ekki sáttir við að flugrekstrarstjóri gæti tekið sé sæti á starfsaldurslista án þess að fara í gegnum sérstakt ráðningarferli þar inn eins og aðrir flugmenn.
Þessi auglýsing er einnig fréttnæm þar sem heyrst hefur að ekki hafi enn þótt unnt að fastráða þá flugmenn sem ráðnir voru inn í Gæsluna í síðustu ráðningu.
Nú þegar uppsagnir eru í fullum gangi hjá öðrum flugrekstraraðilum þá hlýtur þetta að vera spennandi kostur og...
Lesa meiraFlugfélagið Air Atlanta hefur gengið frá framlengingu á fraktverkefni fyrir flugfélagið MASkargo, dótturfélag Malaysia Airlines. Um er að ræða blautleigu á fjórum Boeing 747-200 fragktflugvélum og hefur samningurinn verið framlengdur til maí 2010.
Einnig var gengið frá framlengingu á leigu fimm Boeing 747 flugvéla til Saudi Arabian Airlines sem er einn stærsti viðskiptavinur AIr Atlanta. Samningurinn gildir nú til júní 2010.
Búið er að skrifa undir samning við AeroSur í Bólivíu, um þurrleigu á Boeing 747-300 farþegaþotu með möguleika á breytingu yfir í blautleigu með viðhaldssamning. Vélin verður notuð í áætlun félagsins til Madrid og Miami.
Félagið hefur einnig samning við AirFrance, um flug á Airbus 300-600 fyrir félagið nú fram í lok ágúst á þessu ári.
Lesa meiraNú í morgun var haldinn fundur með flugmönnum Icelandair þar sem þeim var tilkynnt að alls myndu 88 manns missa starf sitt yfir vetrartímann miðað við óbreytta verkefnastöðu. Nú þegar hafa 24 fengið bréf og er reiknað með að þeir hætti 1. september n.k. og er nú verið að senda út 64 bréf til viðbótar þar sem reiknað er með að 30 hætti 1. október, 15 manns 1. nóvember og 19 manns 1. desember.
Að sama skapi munu 35 flugstjórar færast yfir í hægra sætið til viðbótar við þá 10 sem byrjuðu í vor. 1. október færist 21 flugstóri, 1. nóvember 7 flugstjórar og 1. desember 7 flugstjórar.
Verið er að vinna í því að leita verkefna fyrir þær flugvélar sem nú þegar eru ekki með bókuð verkefni í vetur og vonast er til að hægt verði að draga sem flestar uppsagnir til baka sem allra fyrst.
Flugmaður hjá United í Salt Lake City gæti hafa tekið síðu úr kennslubók er hann fór yfir I.M. S.A.F.E. tékklistann sinn og leit svo á að E-ið sitt, sem stendur fyrir tilfinningar (emotion), væri of hátt til að hann gæti flogið þennan dag.
Alla vega var það útskýringin sem hann gaf farþegum sínum um hátalarakerfi vélarinnar eftir að þeir voru sestir um borð, að sögn farþega.
Lesa meiraNú, nokkrum mánuðum á eftir áætlun, hefur Boeing hleypt rafmagni á rafkerfi fyrstu vélarinnar og í gær, mánudaginn 23. júní, var vélin færð frá samsetningarbyggingunni í Everett í annað framleiðsluhús.
Með þessu er búið til rými fyrir næstu vél í röðinni en nú þegar eru fyrstu þrjár vélarnar komnar áleiðis í samsetningu og reiknað er með að sú fjórða byrji í samsetningu síðar í þessum mánuði.
Lesa meira24 flugmönnum Ice hefur verið sagt upp störfum og tekur uppsögn þeirra gildi frá og með 1. sept n.k.
Á sama tíma munu 10 flugstjórar sem ráðnir voru fyrir sumarið, taka sæti flugmanns aftur um leið og dregur úr umsvifum félagsins í haust.
Á þessari stundu er alveg óvíst um frekari uppsagnir, enda ræðst það algjörlega af verkefnastöðu félagsins. Fyrir liggur að samdráttur verður í vetraráætlun og óvíst hvort annað flug eins og leiguverkefni komi í staðinn.
Búið er að telja í kosningu um kjarasamning flugmanna Icelandair og var hann samþykktur með miklum meirihluta atkvæða. Alls kusu 167 flugmenn og þar af samþykktu 140 og 27 höfnuðu.
Atkvæðagreiðsla hófst á félagsfundi flugmanna á Grand Hótel s.l. þriðjudagskvöld og lauk kl. 12 á hádegi nú föstudaginn 16. maí. En eftir félagsfundinn gafst félagsmönnum kostur á að greiða atkvæði á skrifstofu FÍA í Hlíðasmára.
Lesa meiraAir Atlanta Icelandic hefur gengið frá eins árs blautleigusamning við GMG Airlines í Bangladesh fyrir aðra B747-300 TF-AMK flugvél.
Flogið verður áætlunarflug frá Dhaka, Bangladesh, til Kuala Lumpur, Dubai og Jeddah. Eins og í fyrri samningi viðh GMG, Mun Atlanta Icelandic útvega staðlaða ACMI þjónustu, þ.e. flugvél, áhöfn, viðhald og tryggingar.
? Stofnar nýja ferðaskrifstofu fyrir íslenska markaðinn.
? Áhersla á sumar- og vetrarleyfisferðir Íslendinga og móttöku erlendra
ferðamanna.
? Hörður Gunnarsson, fyrrv. frkstj. Ferðaskrifstofu Íslands gengur til liðs
við Icelandair Group.
Icelandair Group hefur ákveðið að efla ferðaþjónustustarfsemi innan félagsins og hefur ráðið Hörð Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóra Ferðsskrifstofu Íslands til stjórnarsetu í félögum innan Icelandair Group.
Icelandair mun hefja flug á flugnúmeri Finnair milli Keflavíkur og Helsinki nú í byrjun maí. Flugið mun vera fjórum sinnum í viku á milli þessara staða fá fyrsta júní en tvisvar í viku þangað til. Eins og áður segir flýgur félagið á tvöföldu flugnúmeri, þ.e. sínu eigin og númeri frá Finnair en í staðinn mun Finnair fljúga á Icelandair flugnúmeri frá Helsinki til Varsjár í Póllandi.
Forsvarsmenn Samvinnutrygginga ehf. ásamt tengdum hluthöfum í Icelandair Group hf. hafa leitað eftir því við erlend flugfélög að þau kaupi allt að 35% hlut í Icelandair fyrir um 8,5 milljarða króna.
Samkvæmt upplýsingum hefur Glitnir tekið að sér að hafa milligöngu um söluna.
Samvinnutryggingar ehf. eiga þriðjung hlutafjár í Langflugi ehf. sem er stærsti hluthafinn í Icelandair, með 23,8% hlut. Finnur Ingólfsson á 2/3 hluta Langflugs ehf.
Annar stærsti hluthafi Icelandair er Fjárfestingarfélagið Máttur ehf. sem er að 49% hlut í eigu Karls Wernerssonar og fjölskyldu og 49% í eigu Einars Sveinssonar og fjölskyldu. Gunnlaugur Sigmundsson, stjórnarformaður Icelandair, á um 2% í Mætti. Karl Wernersson á einnig félagið Naust ehf. sem á 14,8% í Icelandair.
Rannsóknarnefnd flugslysa í Frakklandi hefur gefið út skýrslu um flugatvik TF-LLA um 700 Nm vestan við LPAZ. Flugmenn á TF-LLA finna rafmagnslykt í flugstjórnarklefa og ákveða að halda flugi áfam þar sem lyktin hvarf. Skömmu síðar finnur áhöfnin enn á ný rafmagnslykt. Áhöfnin setur upp súrefnisgrímur og er flugvélinni snúið til Point á Pitre flugvallar. Rannsóknarnefnd flugslysa í Frakklandi (BEA) rannsakaði atvikið og skilaði skýrslu sinni á frönsku. Helstu atriði skýrslunnar hafa verið þýdd og má finna þýðinguna hér.
Í ræðu sinn á aðalfundi Icelandair Group þann 11. mars sl. fjallaði Gunnlagur M. Sigmundsson, stjórnarformaður félagsins, af myndarskap um metnaðarfull framtíðaráform félagsins. Hann fór m.a. yfir afkomutölur samstæðunnar á liðnu ári sem þóttu lakar en hagnaður rekstrarársins nam einungis 257 milljónum króna.
Í framhaldinu rakti Gunnlaugur helstu áherslubreytingar á rekstrarformi félagsins sem væru nauðsynlegar til að aðlagast og mæta sífellt harðnandi samkeppni í alþjóðlegum flugrekstri. Lesa meira
Eftirfarandi tillaga var samþykkt á félagsfundi FÍA 10. apríl 2008 þar sem yfir 100 flugmenn mættu og lýstu eindregnum stuðningi við samninganefnd FÍA gagnvart Icelandair.
Lesa meiraDótturfyrirtæki Icelandair Group, Icelandair Cargo og Icelease, hafa fallið frá samningaviðræðum við Avion Aircraft Trading um leigu og kaup á fjórum Airbus A330-200 fraktflugvélum. Viljayfirlýsing um málið var gerð í maí á síðasta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Samningar hafa verið undirritaðir um rekstur flughermis fyrir Boeing 757 þotur á Íslandi. Gert er ráð fyrir að reksturinn hefjist eftir ár, vorið 2009. Jafnframt hefur verið undirritaður samningur milli Icelandair og Flugskólans um afnot Icelandair af flugherminum til 5 ára.
Lesa meiraUmsóknareyðublöð um orlofshús/tjaldvagn sumarið 2008 hafa verið send út. Einnig er hægt að nálgast þau hér á síðunni. Síðasti skiladagur umsókna er 18. apríl n.k.
Hæstiréttur hefur komist að þeirri niðurstöðu, að Icelandair hafi mátt segja flugmanni upp störfum en flugmaðurinn átti við áfengisvanda að etja. Flugmaðurinn hafði áður fengið áminningu en gerði samkomulag við félagið um að hann héldi starfi sínu ef hann gæti sýnt fram á að hann hefði náð tökum á vanda sínum. Icelandair taldi síðan að það hefði flugmanninum ekki tekist.
Lesa meira
Iranska flugfélaginu Mahan Air hefur verið bannað að fljúga í Evrópu eftir að hafa tvívegis farið undir aðflugslágmörk í aðflugi inn til Birmingham í Bretlandi. Í báðum tilfellum var um að ræða Airbus 310 frá félaginu.
Lesa meira